Aðalvalmynd

Teljari

Auglýsing

Tenglar

Klukkan

Könnun

Áramótaheitin fyrir nýja árið...;)

Tenglar

Gagnasafn

Leit

Innskráningar kubbur

Nýja árið og allt sem því fylgir..Linda María Guðmundsdóttir

Úúúff, áður en maður veit af þá eru bara jólin liðin og nýtt ár handan við hornið..  Er það bara ég eða er maður að verða túú óld túú súún..??  Get varla kyngt því að ég sé að verða the big threeóó á þessu annars ágæta ári..!!!!  Segi bara enn og aftur, mér finnst ég bara vera 16, er ég ein í því eða..????? 


Rosa gott að vera ungur í anda ef lúkkið matsar, annars er maður bara eins og gellan í Cry Baby..!!  Man einhver eftir henni, úúff, varla augum litið ómyndalegri kvenmann..!!  Minnir að hún hafi heitið HatcetFace..Innocent 

Annars erum við familían ekki enn flutt, margt og mikið sem hefur komið í veg fyrir það, er búin að vera mjööööög pirruð skulum við segja bara..  Langar ekkert sérstaklega að fara neitt dýpra oní það, það breytir víst engu.. 


Þó erum við samt ALVEG harðákveðin að sofa fyrstu nóttina okkar í Leirdalnum núna á laugardaginn, come rain or come shine..!!!!!  Var í allan gærdag að setja saman eldhúsinnréttinguna, grunna og þrífa öll herbergisgólfin og glugga, meeen óó meeen hvað ég er með geeeeeeðveikt stóra glugga maður..!!!!!  Er farin að halda að þetta sé e-h grín sko, er maðurinn minn ekki að kveikja á því að ég er bara einn og sextíu eða..??!!! Svo er ég líka búin að flokka þetta pappakassa fjall inní skúr, Gunni sagðist aldrei hafa trúað því að þetta fjall væri farið og allt úr því komið á sína staði.. 

Hann og Jói eru næstum búnir að flísaleggja alla 105 fm af flísunum og litla baðið er allt flísalagt frá toppi til táar..  Klósett komið upp og loksins hægt að hafa það kósí í þeim skilningi..Tongue out 


Vinnan gengur svona glimrandi og alltaf nóg að gera, Gunni er aftur orðinn pottþéttur í sinni vinnu..  Heimir hefur nóg af vinnu fyrir þau Mæju þannig að það er ótrúlega gott að hafa á þessum síðustu og verstu..Laughing 


Ég fer svo aftur í Fríhöfnina von bráðar, bara svona með..  Veit að mín er sárt saknað, vantar alveg Lindufílinginn í þetta..Kiss   


Læt þetta duga í bili, er of upptekin að horfa á Annie með Mistinni minni.. 

Kærleikskveðja og kreppuknúús Linda María..Kiss

Jólagjafalistinn í ár.....!!!!Linda María Guðmundsdóttir

Silfursafnið hans Palla míns og eina góða bók..  Myrká kemur þar sterkust inn..Kiss 

Hvað er efst á þínum gjafalista..?? 

P.S ný jólakönnun, endilega takið þátt..Wink

Leirdalur 5, fjórir dagar....!!!!Linda María Guðmundsdóttir

Ó mæ, ó mæ, nú er að koma að þessu..!!  Loksins eftir langa bið, get ekki beðið eftir að vera bara fænallýý Innnn.. 

Málararnir eru að klára að sparsla og síðan verður farið í að mála á morgun..  Rafvirkjarnir að klára sína vinnu og píparinn sömuleiðis..Laughing  Ég fer svo í það að grunna gólfin á morgun eða hinn, loftin verða líka kláruð á morgun eða hinn.. Íííííííjjh, bara spennandi sko.. 

Verð í bandi með meira goss af húsinu þegar ég er flutt inní ferlíkið..Wink 

Kreppuknúúús Linda María..

Fréttir..Linda María Guðmundsdóttir

Hallúúú leidíís and djents..  Nú er það helsta í fréttum að maðurinn minn hefur í fyrsta sinn EVER fengið uppsagnarbréf og verð ég því eina fyrir vinnan á heimilinu..  Ef frá er talið það sem hann fær frá Atvlskrifstofu.. 

Jááá enginn er seif í dag, veit ekki hversu lengi ég held minni vinnu án þess að ég sé nokkuð búin að heyra á neikvæðu nótunum..  En við vonum áfram bara það besta og flytjum inn í risa húsið okkar eftir rétt rúmar þrjár vikur..Wink  Verður maður ekki að tækla þetta eins og fegurðardrottning og brosa bara gegnum tárin..??  Ég held það svei mér þá, ekki er mikið annað í boði á þessum "fyrstu og bestu"..Tongue out 

Langaði svoooo að fara á BÓ en ákvað snögglega að fresta því sökum ástands..  Þó allt geti nú breyst til hins betra, allt krosslagt bæði hendur og fætur..Wink  Það mikilvægasta í mínu lífi er það sama og alltaf áður, fjölskyldan..  Góð sjálfsskoðun að ganga í gegnum smá kreppu held ég, hvað er það sem skiptir öllu máli..??  Ég hef bara alla trú á því að við lifum þetta af og verðum sterkari einstaklingar fyrir vikið, hef held ég alla mína tíð verið þekkt fyrir óendanlega bjartsýni og jákvæðni.. 

Veit ekki með litlu stúlkuna sem trúði alltaf á sakleysið og á hið góða í mannskepnunni..  Ansi hrædd um að það þyki fátt annað en barnaskapur í dag, þessi tími er bara liðinn held ég..  Nú er bara "eat or be eaten", lögmál frumskógarins er það eina sem gildir..  Ekkert hugs and kisses og eitthvað kjeeftæði..Kiss 

Hey já, við Guðný mín skemmtum okkur konunglega í the jú.essof.ei, náði að fara í Target í fyrsta, jámm gott fólk, fyrsta skipti eveeer sem er bara fyndið því þetta er mín þriðja ferð til Minníí..  En þetta var bara enn sætara fyrir vikið sko, fórum meira að segja í Súúúper Target, eigum við að ræða það eða..!!!!  Bara stórt, held það hafi verið einir 36 kassar..!!!!  Sjitt það var bara mál að velja hvað best væri að borga maður..Money mouth 

Allstaðar voru einhverjir sem höfðu eitthvað að segja um litla sæta Ísland, ekkert áreiti þó sem betur fer..!!  Lille siss gerði sér lítið fyrir og keyrði með okkur fylkismarka á milli (ok kannski smá ýkt..:) hún er náttla bara pínu klár og með hlutina á hreinu..!! Í tvo heila daga vorum við okkar eigin herrar og fórum á milli staða nákvæmlega þegar okkur hentaði, ekkert bíða eftir skutlu eða texí kjaftæði sko..Kiss 

Minnsta málið að keyra í Ameríku með never lost, eina sem maður þarf að hafa er seiglan til að velja á milli staða, það koma bara allar staðsetningar sem eru næstar.. Lentum nebbla í því að við vildum fara í Borders sem er æðislegt bóka/kaffihús og vill svo vel til að það er líka við hliðina á Best Buy og okkur vantaði svoo að komast þangað..  Eeeeeen þar sem þar var LÍKA hrikalega góður heimilsmatarveitingastaður á sama slotti þá þurfti maður að vera ansi naskur að finna út akkúrat hversu langt væri í hann frá hótelinu..  Við enduðum á því að fara fyrst á tvo "vitlausa" staði sem voru annaðhvort með tvo þriðju af því sem okkur vantaði svo loksins þegar við vorum á réttu róli þá lentum við í ROAD BLOCK..!!!!!  Sóóóó eftir einhverja tvo tíma komum við á réttan stað en túúleit og þar sem við erum svo hrikalega samrýmdir ferðafélagar og máske líkar í eðli að við hlógum okkur bara í gegnum þetta..Cool 

Við náðum allavega að borða hrikalega góðan mat..!!  Hahaha, við erum svoddan gormeiii gellur og elskum svoleiðis okkar Dr.Pepper að þetta var bara hið besta mál, hjá okkur snýst þetta ALLTAF um mat og okkur fannst þetta bara ógeðslega fyndið..!!! 

Í fyrra áttuðum við okkur á því að þar sem ég er alltaf svodda unglingur og með slangið á hreinu þá urðum að finna orð ferðarinnar.. 
Þá var það, eruð þið reddííí: Lohovleeheyy..  Get it..??  Á að vera lovely sko en með okkar brjálaða country, redneck accent dauðans þá var þetta svo fyndið að við pissuðum næstum á okkur úr hlátri..!!! 

Núna var orð ferðarinnar: Dumbass og jackass, meira að segja stundum pönkass..  En við vorum ALLTAF með dömmess, hahahaha, allir voru einhverskonar dömmess og ég efast ekkert um að þið væruð sammála þegar við lentum í einum sem var örugglega prestsonur eða predikari, hann óskaði okkur alltaf "JesusChristBlessed afternoon og sjopping og flight og god knows maður..!!!!  Sem betur fer hittum við hann á síðasta degi og náðum að halda smá stillingu en meeeeeeen hvað það var fyndið..!!!!! 

Læt þessa ritgerð duga elskurnar mínar, vil samt mæla með því að þið gerið eins og við Gunni gerðum í dag..  Við fórum í bankann okkar og knúúsuðum þjónustufulltrúann okkar, cause meeen they need some love..!!!!  Þessar konur og menn eru í hrikalega erfiðu djobbi í dag..  Kreppukveðjur Linda María..Laughing

Ameríka á morgun..!!!Linda María Guðmundsdóttir

Jæja, þá eru það Bandaríkin á morgun, get ekki sagt að spennan sé að fara með mig sko..  Finnst þetta ekki alveg vera rétti tíminn til að vera að fara í eitthvert sjoppingsprííí..!!!  Og þó, hátíðirnar koma víst hvernig sem ástandið er á efnahagnum..Laughing 

Stefnan er að fara allavega og versla það sem stubbana vantar og eitthvað af jólagjöfum..  Svo má alls ekki gleyma dr.pepper eða mongolian á kantinum..!!!!  Míí favouríítóó..Laughing 

Er mjög spennt yfir því að vera að fara með litlu siss og njóta þess að vera í "fríi"..  Veit þó að þetta verður seint álitin hvíldar eða senjorítu ferð..!!! 

Annars er það í fréttum að við flytjum inní Leirdalinn 1.des, get ekki beðið eftir því að fara loksins inní húsið mitt..Wink  Finnst ég alveg vera búin að bíða..  Var að vonast til að vera flutt inn 1.nóv en svona er þetta víst.. 

Skemmtum okkur bara vel í innfluttningspartýinu hjá Sóleyju og Arnari og kyndum okkur upp fyrir okkar eigið partý..Tongue out 

Kannski að það verði bara 1.des, hver veit..!!!!!

Má nú orðið tala um kreppu eða..??Linda María Guðmundsdóttir

Það er aldeilis sem þessi "niðursveifla" ætlar að leika menn grátt..  Ég persónulega hef og vil fá að notast við dramatíkina og segja KREPPA..!!!  Atburðir síðustu daga sýna fram á svo ekki verður um að villast að okkar litla samfélag á nú í töluverðum erfiðleikum.. 

Þrátt fyrir að ég sé að byggja fasteign sem er komin í himinhæðir og er að leigja þá verð ég nú samt að státa mér af því að ástandið hér hefur oft verið verra, á mínu heimili allavega, skodinn kostaði mig blóð, við vorum með þrjá bíla á "framfæri" í dágóðan tíma og ekki má gleyma blessuðum Visa kortunum ljúfu..Gráðugur  Allt kemur þetta á eftir lélegum launum, leikskólagjöldum, skólavistun, íþróttakostnaði og gömlu, góðu bensín/bónus/matarreikningunum..!!!! 

Vonandi er ég ekki að drepa neinn hérná kantinum..Ullandi 

Bjartsýnin getur gert hreint kraftaverk og bara það að brosa stundum í gegnum tárin fær mann til að trúa því að allt sé hægt...!!!!!!  Góðir vinir eru líka stóóór partur af því að stappa í mann stálinu þegar manni finnst maður vera að reykspóla á felgunum..!!!! 

Það besta við síðustu daga finnst mér þó hvernig Geir gamli hefur tekið á hlutunum, við skulum ekki gleyma því að þótt Dabbi kóngur sé ekki lengur í ríkisstjórn þá er hann engan veginn laus við pólitíkusarpödduna..!!!  Hann er alltaf að sýna það og sanna að hann er engan veginn hæfur í sínu starfi..  Eða kannski bara starfi sínu ofvaxinn, stundum held ég að svona himnasængur eins og hann séu hreinlega of stórir fyrir þetta litla sker..!!

Mér finnst líka þessi blessaði eltingarleikur við Bónusfeðga vera orðinn býsna þreyttur og þrátt fyrir að þeir eigi það sem þeir eiga þá er þetta gjösssssammmlega fyrir neðan allar hellur..  Pælið í því ef hann gerði allan þennan farsa í kringum Glitni útaf hefnd útí þessa menn..!!!!   Hversu langt er maðurinn reiðubúinn að ganga..??? 

Mér finnst bara að allt sem er loðið þurfi að greiða úr eða henda úr safnhaugnum..!!!  Hversu úldið eða morkið sem það er...!!!! 

Þrátt fyrir að það hefði verið hægt að gera þetta og hitt fyrir löngu síðan þá er það nú samt sem áður Geiri kallinn sem situr fyrir svörum og stendur stöðugur meðan margir hefðu fyrir löngu kiknað..!!!  Kallinn á hrós skilið og hefur sýnt með skjótum viðbrögðum sínum að hann er með bein í nefinu og þarf kannski bara að fá að starfa svoldið óháð sínum gamla vini seðlabankastjóra..!!!  Sitt sýnist hverjum að sjálfsögðu og allt það..Ullandi 

Á núll einni lækkaði bensínið um 11 kall og gjaldeyrinn um fleiri tugi, hver væri staðan ef þessar aðgerðir hefðu komið fyrr..??  Væri ég þá svona ánægð með Geira gamla og kannski lofsamandi Dabba kóng..??  Hver veit, núna get ég allavega talið krónurnar í buddunni og hætt að hafa áhyggjur af því að geta ekki með góðu móti fætt eða klætt börnin mín..!!!! 

Það er sko ekki ofsögum sagt að við vorum ekki nema korteri frá því að allt hefði farið til fjandans....!!!

Knúús í kreppunni Linda María..Glottandi

NEW COMPUTER, NEW LIFE..!!!!!Linda María Guðmundsdóttir

Loksins komid nytt net, tharf bara ad laera hvernig a ad islenska thetta..  Bara ad segja hi people.. 

knuuus Linda Maria

Klukk..:)Linda María Guðmundsdóttir

Hann Gísli minn var víst að klukka mig þannig að það er eins gott að sýna lit..:)  Here goes everybody..:)



Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

H.F hjá Agga mínum
Soho
Offinn
Fríhöfnin


Fjórar myndir sem ég held uppá:

Bad Boys I og II, fæ aldrei nóg..;)
Sama hægt að segja um Lethal Wepon
Sweet Home Alabama
Home Alone, elska Kevin og familíu..;)


Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Kefcity
Hallormsstaður
Rvk
Egilsstaðir


Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

Friends
Greys Anatomie
Desperate Houswives
Two and a Half Men


Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Danmörk
Mallorca
Minníí beibíí
Barcelona


Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):

Visir.is
Mbl.is
Hss.is
Hive.is


Fernt matarkyns sem ég held uppá:

Kjúlli
Rif á Ruby´s
Allt kínverskt
Mexíkanska kjúllasúpan hennar Guðnýjar systur, díílissíöss..!!


Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:

Dv
Mogginn
Röddin: Arnaldur Indriða
Gestgjafinn


Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:

Sólarströnd á Barcelona, 3 dagar í það beibíí..!!!
Heima hjá ömmu og afa heitnum..:(
Í bústað í Húsafelli
Egilsstöðum


Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Bengta María
Sveindís systir
Júlía mín
Sólrún sem reyndar seint kveikir á tölvu..;)

Smá öppdeit..;)Linda María Guðmundsdóttir

Síðasti dagurinn í gömlu, góðu Fríhöfninni í kvöld..  Get ekki sagt að ég sé að deyja úr söknuði eða neitt í þá áttina..  Kannski bara tími á breytingar..Hlæjandi 

Litlu englarnir mínir eru búnir að vera í heila viku í sveitinni á morgun og koma heim annað kvöld..  Get ekki beðið, gott að hvíla sig að hvort öðru og svona en hrikalega erfitt að vera í burtu frá þeim.. 

Hvernig verður það þegar við förum til Barcelona..!!  Ekki viss um að sumir taki því stóískt neitt sko..Þögull sem gröfin  Hlakka allavega mega mikið til að fá þau í fangið, allt of langur tími.. 

Er búin að vera að vinna aðeins í nýju vinnunni hjá honum Steina mínum, BARA gaman sko..!! Hlæ bara held ég allan daginn það er svo gaman hjá mér.. Have túú góó náá..

Knúús everybody..Koss

Aaaaaarrrg..!!!!!Linda María Guðmundsdóttir

Er enn að ná mér eftir að hafa skrifað helling inná um daginn og það bara hvarf..!!! 

Þoli þetta ekki, er búin að vera í smá fýlu út í bloggar en er að jafna mig.. 

Ætla að skrifa meira í kvöld því ég er byrjuð í nýju vinnunni og er heima í "lönsj" eins og sagt er á góðri ameríkönsku..Ullandi 

Knúús þar til túúnææt..

Síða 1 af 7