Bara kvitta f heimsóknina :-)
Kreppa smreppa!!!
Wuw you.. þarf að skreppa !
Velkomin, svona er ég óritskođuđ..
Má nú orđiđ tala um kreppu eđa..??Linda María Guđmundsdóttir
Það er aldeilis sem þessi "niðursveifla" ætlar að leika menn grátt.. Ég persónulega hef og vil fá að notast við dramatíkina og segja KREPPA..!!! Atburðir síðustu daga sýna fram á svo ekki verður um að villast að okkar litla samfélag á nú í töluverðum erfiðleikum..Þrátt fyrir að ég sé að byggja fasteign sem er komin í himinhæðir og er að leigja þá verð ég nú samt að státa mér af því að ástandið hér hefur oft verið verra, á mínu heimili allavega, skodinn kostaði mig blóð, við vorum með þrjá bíla á "framfæri" í dágóðan tíma og ekki má gleyma blessuðum Visa kortunum ljúfu..
Vonandi er ég ekki að drepa neinn hérná kantinum..
Bjartsýnin getur gert hreint kraftaverk og bara það að brosa stundum í gegnum tárin fær mann til að trúa því að allt sé hægt...!!!!!! Góðir vinir eru líka stóóór partur af því að stappa í mann stálinu þegar manni finnst maður vera að reykspóla á felgunum..!!!!
Það besta við síðustu daga finnst mér þó hvernig Geir gamli hefur tekið á hlutunum, við skulum ekki gleyma því að þótt Dabbi kóngur sé ekki lengur í ríkisstjórn þá er hann engan veginn laus við pólitíkusarpödduna..!!! Hann er alltaf að sýna það og sanna að hann er engan veginn hæfur í sínu starfi.. Eða kannski bara starfi sínu ofvaxinn, stundum held ég að svona himnasængur eins og hann séu hreinlega of stórir fyrir þetta litla sker..!!
Mér finnst líka þessi blessaði eltingarleikur við Bónusfeðga vera orðinn býsna þreyttur og þrátt fyrir að þeir eigi það sem þeir eiga þá er þetta gjösssssammmlega fyrir neðan allar hellur.. Pælið í því ef hann gerði allan þennan farsa í kringum Glitni útaf hefnd útí þessa menn..!!!! Hversu langt er maðurinn reiðubúinn að ganga..???
Mér finnst bara að allt sem er loðið þurfi að greiða úr eða henda úr safnhaugnum..!!! Hversu úldið eða morkið sem það er...!!!!
Þrátt fyrir að það hefði verið hægt að gera þetta og hitt fyrir löngu síðan þá er það nú samt sem áður Geiri kallinn sem situr fyrir svörum og stendur stöðugur meðan margir hefðu fyrir löngu kiknað..!!! Kallinn á hrós skilið og hefur sýnt með skjótum viðbrögðum sínum að hann er með bein í nefinu og þarf kannski bara að fá að starfa svoldið óháð sínum gamla vini seðlabankastjóra..!!! Sitt sýnist hverjum að sjálfsögðu og allt það..
Á núll einni lækkaði bensínið um 11 kall og gjaldeyrinn um fleiri tugi, hver væri staðan ef þessar aðgerðir hefðu komið fyrr..?? Væri ég þá svona ánægð með Geira gamla og kannski lofsamandi Dabba kóng..?? Hver veit, núna get ég allavega talið krónurnar í buddunni og hætt að hafa áhyggjur af því að geta ekki með góðu móti fætt eða klætt börnin mín..!!!!
Það er sko ekki ofsögum sagt að við vorum ekki nema korteri frá því að allt hefði farið til fjandans....!!!
Knúús í kreppunni Linda María..
Athugasemdir
2
Eygló G. - skrifar:
10. október 2008 klukkan 04:05
3
sveindís skrifar:
Gvuð hvað maður er orðinn þreyttur á orðinu kreppa,
djísus kræst maður var farin að halda að loka tímarnir voru loksins komnir.
En sem betur fer er þetta að lagast hægt og rólega og við sem almenningur getum ekkert gert nema að sitjast niður og sjá hvað gerist næst ;)
enn já alltaf sami penninn í þér Linda María <3 endalaust gaman að lesa bloggin þín :*
knús, lil sys.
djísus kræst maður var farin að halda að loka tímarnir voru loksins komnir.
En sem betur fer er þetta að lagast hægt og rólega og við sem almenningur getum ekkert gert nema að sitjast niður og sjá hvað gerist næst ;)
enn já alltaf sami penninn í þér Linda María <3 endalaust gaman að lesa bloggin þín :*
knús, lil sys.
12. október 2008 klukkan 14:27
Ég er bara glöð að það er búið að koma hlutunum þannig fyrir að fólk ætti ekki að missa húsin sín og getur keypt sér að borða ;)
Og já.. bjartsýni er það eina sem gildir þegar það eina sem maður heyrir er að allt sé að fara til fjandans.. lífið heldur áfram og verður bara betra ;)