Velkomin, svona er ég óritskoðuð..
Nýja árið og allt sem því fylgir..Linda María Guðmundsdóttir
Úúúff, áður en maður veit af þá eru bara jólin liðin og nýtt ár handan við hornið.. Er það bara ég eða er maður að verða túú óld túú súún..?? Get varla kyngt því að ég sé að verða the big threeóó á þessu annars ágæta ári..!!!! Segi bara enn og aftur, mér finnst ég bara vera 16, er ég ein í því eða..?????
Rosa gott að vera ungur í anda ef lúkkið matsar, annars er maður bara eins og gellan í Cry Baby..!! Man einhver eftir henni, úúff, varla augum litið ómyndalegri kvenmann..!! Minnir að hún hafi heitið HatcetFace..
Annars erum við familían ekki enn flutt, margt og mikið sem hefur komið í veg fyrir það, er búin að vera mjööööög pirruð skulum við segja bara.. Langar ekkert sérstaklega að fara neitt dýpra oní það, það breytir víst engu..
Þó erum við samt ALVEG harðákveðin að sofa fyrstu nóttina okkar í Leirdalnum núna á laugardaginn, come rain or come shine..!!!!! Var í allan gærdag að setja saman eldhúsinnréttinguna, grunna og þrífa öll herbergisgólfin og glugga, meeen óó meeen hvað ég er með geeeeeeðveikt stóra glugga maður..!!!!! Er farin að halda að þetta sé e-h grín sko, er maðurinn minn ekki að kveikja á því að ég er bara einn og sextíu eða..??!!! Svo er ég líka búin að flokka þetta pappakassa fjall inní skúr, Gunni sagðist aldrei hafa trúað því að þetta fjall væri farið og allt úr því komið á sína staði..
Hann og Jói eru næstum búnir að flísaleggja alla 105 fm af flísunum og litla baðið er allt flísalagt frá toppi til táar.. Klósett komið upp og loksins hægt að hafa það kósí í þeim skilningi..
Vinnan gengur svona glimrandi og alltaf nóg að gera, Gunni er aftur orðinn pottþéttur í sinni vinnu.. Heimir hefur nóg af vinnu fyrir þau Mæju þannig að það er ótrúlega gott að hafa á þessum síðustu og verstu..
Ég fer svo aftur í Fríhöfnina von bráðar, bara svona með.. Veit að mín er sárt saknað, vantar alveg Lindufílinginn í þetta..
Læt þetta duga í bili, er of upptekin að horfa á Annie með Mistinni minni..
Kærleikskveðja og kreppuknúús Linda María..
Athugasemdir
1
Linda María skrifar:
Komin ný könnun, endilega takið þátt..:)
29. desember 2008 klukkan 14:31