Velkomin, svona er ég óritskoðuð..
29 ára gamla truntan..:)Linda María Guðmundsdóttir
Jamm og jæja, þá er maður korter í þrítugt.. Held ég sé ekki alveg tilbúin í þann pakka en svona er lífið víst, maður yngist ekki héðan af.. Þó líður mér ekki eins og ég sé jafn gömul og árin segja til..
Get alveg gleymt mér í FS með unglingunum og tekið þátt í kjaftasögunum með kellingunum í vinnunni.. Held að aldur sé bara mjög afstæður, ekkert sérstakt geimplan..
Skemmti mér allavega þvílíkt vel í "afmælinu" mínu, takk þeir sem gáfu sér tíma í smá kökur og með því..
Ekki skemmdi fyrir leynitrippið sem maðurinn minn hafði undirbúið fyrir mig, hefði aldrei getað séð það fyrir..
Fórum og gistum á Arnarhvoli sem er hótel niðrí bæ í borginni.. Fengum æðislegt herbergi uppá sjöttu hæð með geggjuðu útsýni..
Gengum síðan um hálf átta leytið niðrá Humarhúsið þar sem beið okkar borð..
Þessi sérstaki staður var svoo mikið æði því ég elska humar og þar sem Gunni greyið er með ofnæmi fyrir humri og rækjum þá er þetta eitthvað sem ég hef hreinlega þurft að neita mér síðustu ellefu árin..!!! Sem er þó engin fórn því ég hef manninn sem ég elska ofcourse en meeeeen hvað þetta var æðislegur matur..
Sátum þar örugglega í þrjá tíma og kjöftuðum um allt milli himins og jarðar, man ekki hvenær tími gafst til þess að bara TALA..!!!! Tryggðum okkur svo langþráð frí í lok ágúst með vikuferð til Barcelona á 4 stjörnu hótel.. Get ekki beðið, þar sem við erum búim að standa í þessu hússtandi í HEILT Ár núna í lok júlí fannst okkur þetta engin spurning..
Stubbarnir verða hjá ömmu og afa í sveitinni þannig að þetta verður algjör eðall..!!!! Takk í dag krúttin mín og njótið helgarinnar..
Nýtt, nýtt, nýtt..;)Linda María Guðmundsdóttir
Nú er ég búin að setja inn helling af myndum og setti líka inn nýja könnun..
Endilega takiði þátt..
Er líka að dromma inn myndum inn á Barnaland hjá krúttunum mínum þannig að það fer líka að glæðast yfir því..
Allt eða ekkert, that´s my mottóóó..!!!
Þar til næst pípúl, knúúúús..
Helllúúúú.....!!!!!!!Linda María Guðmundsdóttir
Hæ hæ, þá er ég aftur mætt..
Mikið að gerast í mínu lífi og alltaf kemur að fleiru til að deila með öðrum.. Þar sem ég hef hreinlega drekkt mér í öllu á milli himins og jarðar þá hef ég einhvernveginn ekki getað hafið mig af stað..
En núna finn ég að ég er tilbúin, var að blogga mikið fyrir fermingarnefndina og þar sem sá pakki er liðinn þá get ég betur einbeitt mér að þessu..
Ætla að setja inn link þannig að þið getið lesið mínar bernsku minningar, bara fyndið að hugsa til baka..;)
Annars er það að frétta að ég er búin í sumarfríi, náði að negla 9 einingar í sumarskóla FB og fara í langþráða axlaraðgerð á hægri.. Ekki hægt að segja að Linda María Guðmundsdóttir slái slöku við frekar en fyrri daginn..!!!!!! Einnig skal taka fram að ég hef sagt starfi mínu lausu uppí hinni virtu Fríhöfn og verður mín nú vonandi saknað frekar heldur en hitt..
Og þó, maður veit aldrei, orðspor manns er nú eitthvað sem allt annað lifir..
Ég skil allavega við starfsfélaga mína til þriggja ára í góðu og með pínu söknuði en held áfram með bros á vör..;) Ekki þýðir nokkuð annað þegar tækifærin banka.. Mitt nýja starf er meira krefjandi og býður uppá mikið fleiri möguleika, hér eiga mínir "persónutöfrar" eftir að koma mér og fyrirtækinu til góða.. Það er ég alveg handviss um..
Einnig sé ég glitta í stúdentshúfuna handan við hornið, mun koma til með að útskrifast um jólin, fænallýýý..!!!!! Mikið sem ég hef lagt hart að mér við að klára þetta helvíti, þegar upp er staðið hef ég klárað um 70 einingar á þremur önnum með bullandi vinnu og brjálæði..!! Það gerir þetta bara enn sætara..
Annars erum við komin með fokheldi á Leirdal 5 og ég og systir mín sætust ásamt Gunna lögðum eina 400 fm af torfi á lóðina..;) Alveg í skýjunum með það að vera komin með garð, mínir grænu fingur eru gjössamlega á iði sko..:) Stefnan er að vera flutt inn 1.okt..!!
Nú er pleisið fullt af múrurum sem eru að múra það frá toppi til táar að innan og rafvirkjarnir eru að setja upp töfluna.. Allir gluggar og hurðar sem uppá vantaði eru komnir í fænal pöntun þannig að nú er loksins hægt að fara að telja niður..;)
Litlu ungarnir mínir eru alltaf jafn yndislegir, Alex er búin að vera iðin í sumar á listanámskeiðum og leikjanámskeiðum ásamt því að fara í heimsókn í sveitina.. Aríel Gauti er búinn að vera svolítið leiðari, með í eyrunum og einhver leiðindi.. Einnig er stórt skap alveg að fara með lítinn mann, deeeem, hann er alveg að springa úr "ákveðni"...
Ætla að láta þetta duga að sinni sælu vinir, en minni ykkur enn og aftur á að lesa við tækifæri fermingarsíðuna, hún er bara fyndin..
Síðan kallast www.ferming1979.bloggar.is og til vinstri á síðunni sjáiði nafnið mitt undir bloggurum..
Knúúús og kossar Linda María..
Hæ everybody, jáá ég er á lífi..;)Linda María Guðmundsdóttir
Jiiii minn eini, held ég hafi bara aldrei verið jafn löt við að blogga..!!Kannski er ástæðan sú að ég hef bara hreinlega ekki nógu marga klukkutíma í sólarhringnum..;)
Hér á bæ er bara unnið eða verið í skóla eða í sjúkraþjálfun eða í einkaþjálfun.. Ef ég er ekki að eyða tímanum í þessa punkta þá er ég með blessuð börnin mín eða að þrífa bíla eða í bónus eða að elda eða að þrífa heimilið....!!!!
Reyndar gleymdi ég því að ég er í undirbúningsnefnd fyrir fermingarafmælið hjá '79 árgangnum og erum við með handrit og upptökur og allt á milli himins og jarðar..
Púúúúffff, eigum við að ræða þetta eða..!!!!!
Svo er maður alltaf áfram í vinnunni eða til 4, 5 eða 6 á morgnana og svo tekur skólinn við alla morgna kl 8..
Jááááá, suma daga þá er ég hreinlega að berjast við að standa í lappirnar en þetta vonandi lagast allt með vorinu..;)
Læt þetta duga í bili kiðlingarnir mínir og lofa að vera duglegri á komandi tímum..:)
Gleðilegt ár dúllurnar mínar..:þLinda María Guðmundsdóttir
Bestu óskir allir mínir kærustu vinir og ættingjar..:* Takk frá innstu hjartans rótum fyrir allt það gamla og takk fyrir að standa við hlið mér, veit að það er oftast rok í kringum jors trúúlíí og lítið um logn, svoldið eins og veðráttan hér á klakanum..:) Allavega, takk, takk, ég kann vel að meta allt..:*Nýja árið byrjaði ekki vel, við Gunni ældum okkur í orðsins fylgstu inní 2008, jafnaði mig ekki fyrr en seint og síðar meir á þessu ógeði..!! Sem betur fer er þetta þá BÚIÐ..!!
Amma Dísa bauð Alex í sveitina annan jan því við komum ekki um jólin og fannst henni það náttla æði, fékk að fara í skólann með ömmu og allt.. Hittum Magna á flugvellinum og við knúsuðum hann í bak og fyrir, hittum líka Júlíu og Eika bleika en þau voru að ná í Almar Loga..
Síðan er bara skólinn byrjaður á fullu spítti, ákvað að taka mér 20 einingar núna en ég kláraði 21 fyrir jólin.. Úúúúff, er enn að jafna mig held ég bara..!! Allt og mikið sem ég tók mér fyrir hendur en náði í mark og féll ekki í neinu..;) Hæstánægð með það, fékk 3 áttur og 5 sjöur..:) Útskrifast svo um jólin ef Guð lofar, síðasta önnin verður algjört tjill miðað við annirnar sem á undan hafa gengið..
Svo er það bara júnívörsittííí 2009..!! Hvað ég svo ákvað að taka verður ábyggilega bara gestaþraut, svei mér þá, ég er svoddan fiðrildi að ég get engan veginn ákveðið eitthvað eitt maður...:/
Það hlýtur að koma til mín, get samt ekki sjeikað sálfræðina, finnst mjög líklegt að ég taki það.. Held að mitt skemmda uppeldi komi til með að hjálpa mér aðeins þar, deeeem ekki bjóst ég við að það ætti eftir að koma mér að góðum notum í framtíðinni..!! En svona er þetta, lífið er fullt að uppákomum,góðum
og jááá, slæmum líka stundum..
Gunni er farinn að vera bara 24/7 að vinna, vinnur til 7 og svo beint í Leirdalinn, ætlum að steypa milliveggina næsta föstudag og síðan er það bara að loka þessu ferlíki.. Gluggarnir koma í byrjun mars og við hjúin erum svo flogin til Lettlands að versla eins og kreyysííí people..:) Nú fara hlutirnir bara að gerast sko..:)
Sólrún mín hætt í vinnunni, en hún er farin að vinna í Holtaskóla, snúllan mín er aldrei langt undan..:) Sólrún er stuðningsfulltrúi í bekknum hennar, what are the odds..?? Þannig að ég veit að hún er í góðum höndum..:)
Svo er það bara brúðkaup í saumaklúbbnum, Ingunn og Ingvi að fara að festa sig, meeeen hvað okkur hlakkar til að fara að gera og græja hin ýmsu leyndarmál.. Svo er Guðrún okkar ófrísk, Svava okkar og Eiríka líka..:) Vaááá helmingurinn er ófrískur, hverjar eru líkurnar..?? Skrítið að maður velti fyrir sér hvort þetta sé smitandi..!!
Fermingarafmælisnefndin fer svo að fara á fullt aftur, 15 ára afmælið bara handan við hornið.. Varla að ég trúi því að maður sé orðinn svona fokkkkkinnn gamall..!!!!! En jæja svonar virkar þetta víst, við förum bara áfram í lífinu ekki aftur á bak, sem er bara gott ekki satt....??
Ætla að hætta núna kæru vinir og sendi ykkur mínar bestu kveðjur..:)
P.s Guðný sakna þín MEST..!!
Gleðileg jól..:*Linda María Guðmundsdóttir
Gleðileg jól kæru vinir nær og fjær..:)Vonandi verða jólin ykkar yndisleg og blíð, þetta er besti tími ársins og tími til að vera í faðmi fólks sem þú elskar..
Við tekur svo glænýtt ár með endalausum möguleikum og tækifærum til að bæta fyrir gömul mistök og gera ný heit..
Ég sendi ykkur öllum mínar hjartnæmustu jóla og friðarkveðjur..;)
Kær kveðja Linda María..:*
Nú koma þau á nýýý, ég fæ aldrei nóg af þvííí..:)Linda María Guðmundsdóttir
Prófin búúúiiiiiin..!!!!Ákvað að láta 8 prófin duga, hef ekki getu í meir..
Finnst þetta bara ágætt í bili, nú er bara að bíða og vona að ég hafi náð þessu..:/ Prófsýni eru á þriðjudaginn, verð að reyna að bíða róleg..
Var að klára að baka fyrsta umganginn af jólasmákökum, geri aðra tegund í kvöld.. Haframjöls kökur, uuummm, Sólrún mín og stelpurnar í vinnunni segja að þær séu ógó gógó..:) Ætla að taka með mér skammt á morgun og jólakortin sem ég ætla að senda austur..
Fæ ekki myndirnar frá Oddgeiri fyrr en eftir helgi þannig að það er eins gott að fara að byrja á þessu..!! Myndirnar eru ÆÆðiii, ótrúlegt, þrátt fyrir mikla fýlu og krankleika í báðum skapspúandi möttulstrókunum..
Bíddu vóóóó, er ekki komið nóg af Jarðfræðinni eða..??
Oddgeir er bara snilli, það er bara ekkert öðruvísi, mæli brjálæðislega með honum..:) Held að þetta sé í 6 skiptið sem við förum til hans og ég er alltaf jafn ánægð.. Hann er bara þvílíkt almennilegur og vill allt fyrir þig gera og er þvílíkt yndislegur..
Hlakka mikið til að sýna nýja lúkkin á kantinum, sumt kemur bara vel á óvart, og annað .. ekki..:)
Er að fara á morgun með Alex í upptöku á dvd og cd, Regína og Emilía X Nælonpía létu mig vita af því að þetta hefði e-h klikkað hjá dúllunni, og einhverjum 2 öðrum..!!
Týpískt, auðvitað klikkaði hjá Alexöndru, þannig að nú fær hún sjens til að gera bara enn betur..;) Þetta er nú bara jákvætt, ekki fannst skvísunni þetta jafn æðsilegt en svona er þetta bara..;) Sjá hlutina með jákvæðu viðhorfi er það ekki bara..??
Annars eru jólin bara handan við hornið maður, úff, tengdó sár yfir að við komum ekki yfir hátíðirnar.. En svona er þetta bara, kostar mikið og við að byggja hús og bara mál að taka ALLA pakkana með austur..!! Ekkert smáræði þessir pakka maður..:)
Svo verður Guðný systir í mat hjá okkur þessi jólin með snúllurnar, Gunni má er að vinna í löggunni þannig að hana langar SKILJANLEGA til að vera hjá stóru siss sem elskar hana mest..:) Það verður æði hjá okkur, hlakka mikið til..:)
Ætlum í bæinn á mánudaginn í sjoppingsprííí, leiðrétting, framhald á Ameríkusprííííinu..;) Gátum náttla ekki keypt allt þarna úti, verðum að geta gert eitthvað hér..;) Verður bara svona systra, stelpu, kaffihúsa fílingur með tómat, sinnep og steiktum..:)
Heyrðu jááá, risa p.s, mín bestasta vinkona er að flytja í táánið, hún Júlía mín er komin með íbúð uppá velli..;)
Hjartanlega til hamingju með það krúttið mitt og vertu velkomin, I TOLD YOU, sannur Keflvíkingur og verður það alltaf..;) Komin 10 ár síðan við bjuggum saman á Hafnargötunni, díses hvað tíminn hefur flogið..:)
Get ekki beðið eftir áramótunum, spurning um hversu þungan kalkún á að taka.. Geri ráð fyrir að flestir ef ekki allir Kjerúlfarnir verði saman komnir undir sama þaki og fóstursystirin úr Glæpavíkinni..:)
Knúúús og kossar litlu jólaálfarnir mínir..;)
33 dagar til jóla, er þetta grín..??Linda María Guðmundsdóttir
Jæja krúttin mín, hvað segiði þá..?? |
Hey honíí, æææm hóóóóm..:)Linda María Guðmundsdóttir
| Þá er ég komin heim eftir geggjaða ferð til Ameríku..;) Vúúúúúbbbíkííí..!! Rosa gaman em heljarinnar vinna.. Mikill tímamismunur sem tekur mann strax í rassgatið, eftir fyrsta daginn munaði 5 tímum en á öðrum degi munaði 6..!! Þannig að þegar við vorum að borða um 7 leytið úti að kvöldi var klukkan heima 1 á miðnætti..:) Rosa skrítið fyrst en venst svo ágætlega, fyrsta kvöldið eftir að við lentum fórum við beint í Wall Mart og vorum að versla til 5 um morguninn hérna heima..!! Pælið í því, við vorum bara þreyttar..:) En vááá, við vorum svo rosa duglegar að versla fyrstu tvo dagana að við vorum eiginlega bara búnar að klára allt þá..;O) En ofcourse var ekki stoppað þar, neeeeeiii, versluðum af okkur restina af rassinum alla aðra daga..;) Verður ekki gefið upp hér neitt í tölum en það er seif tú sey að við fórum aðeins yfir 46 þús króna markið..;) Humm, humm, viðurkenni ekkert ef tollaravinir mínir skoða þetta, það er mikið búið að rugla í manni þarna uppfrá síðan við komum heim..;) Þeir vita að litla Linda María Guðmundsdóttir kann ekki að ljúga og þarf ALLTAF að vera heiðarleg..:) Eftir gömul mistök reynir hún að breyta rétt og vonandi gengur það í flestum tilvikum..:) Þegar strákarnir ætluðu að reyna að grilla mig uppí vinnu sama kvöld og ég kom heim acually HLJÓP ég í gegnum tollinn..!!! Hahahahahaha, þetta er ekki grín, allt til að þurfa ekki að ljúga..:O) Fórum í Albertville og versluðum grimmt, sáum sko ekki eftir því.. Þar eru öll helstu merkin á sjitttt góðu verði sko.. Allir sem fara til Minní verða að gera sér ferð þangað..:) Guðný verslaði auka tösku á hjólum til að rúlla með draslið á milli búða því þetta eru margar verslanir hlið við hlið, enginn staður til að leggja frá sér eitt eða neitt..;) Taxinn beið meira að segja eftir okkur allan daginn..!! Frá 11 til rúmlega 5..!! NO CHARGE...!!!!!! Vááá hvað við fengum góðan díl, vil líka benda á að RAMADA INN er æðislegt hótel.. Frábær þjónusta í alla staði, þeir skutluðu okkur allt...!! Frítt..!! Borðuðum á geggjum stað þar sem við fengum Mongolían, sem er geggjaður matur, steikt kjöt og frænmeti og val á olíum sem spæsa þetta upp.. All you can eat my freinds..;) Vorum alltaf með þetta uppí Offa þegar ég var að vinna þar og þetta er hreint æði..;) Erum allavega komnar heim heilar á húfi og við skemmtum okkur konunglega, bið ykkur vel að lifa kæru vinir og hafið það sem allra best..;) |
Ameríka beiiiibí..:)Linda María Guðmundsdóttir
Er að klára ensku 500 og er að fara heim að klára allt því ég er að fara til Minní á EFITR..!!!!!!!!!!!!!!!!!!Get ekki beðið, þó ég viti að ég á eftir að DEYJA úr söknuði eftir börnunum mínum.:( Hlakka samt BARA til sko, get ekki beðið núna, þá eru það bara kokteilar á kantinum..:)
See you later beibííís..;) Whish u the best..:)