Aðalvalmynd

Teljari

Auglýsing

Tenglar

Klukkan

Könnun

Áramótaheitin fyrir nýja árið...;)

Tenglar

Gagnasafn

Leit

Innskráningar kubbur

Linda María Guðmundsdóttir

Glasgow beibí!!!  Get ekki beðið eftir föstudeginum...  Það verður svo geðveikt!! 

Náði að "troða" mér með Sólrúnu og saumó, vonandi eiga þær ekki eftir að sjá eftir því..;) 

Annars er bara allt gott að frétta, vinna, vinna, vinna og börnunum gengur vel í skóla og hjá dammó.. 

Var á foreldrafundi í gær og kom það bara alveg glimrandi vel út.. Kommentið um að hún væri MJÖÖÖÖG metnaðargjörn kom mér sko engan veginn á óvart, hún er sko einstök hvað það varðar..!! 

Hún er með þeim fremstu í lestri og getur hún sko ekki sleppt þessum 16 bls á hverjum einasta degi, sama hvað tautar og raular..  Það er eins og himinn og jörð séu við það að farast ef hún þarf að taka sömu bók með him 2 daga í röð...  Ó mæ god, já gott fólk, þetta er sko barnið mitt.. 

Gæti ekki verið stoltari af mínum englum og ég þakka fyrir þau alla daga.. ;)

Er að fara með þau í myndatöku á eftir, vonandi á það eftir að ganga eins og smurt..  Sá myndatökuna hjá Grétu og vá hvað þær voru æðislegar..  Stelpurnar voru allar þvílíkt góðar og duglegar..  7-9-13..!! 

Vonandi eru allir komnir í ljúfa gírinn því nú nálgast jólin óðfluga..  Merry, merry kæru vinir..;)

Linda María Guðmundsdóttir

Þá eru mæðgurnar haldnar aftur til Sweden.. 

Ætli það taki mann ekki tímana
tvenna að venjast því að þær séu búsettar þar, en kannski ekki.. 
Ekki eins og
maður sé búinn að vera mikið í bandi en vonandi breytist
það með komandi tíð..;)


Ég er alveg við það að fara á límingunum yfir Sylvíu minni, held svo sterkt að hún
sé búin að eiga eða sé inná delivó as víí spííg..  Hún var skráð þann 20. okt og
hefur hún beðið síðan þessi elska.. 

Við erum að tala um kúlu sem er unheard of,
ég segi það satt..  Þegar við skvísurnar hittumst á Madonnu fyrir 6 eða 7 vikum þá voru þjónarnir að pæla hvort hún væri ekki að fara að eiga þessa TVÍBURA!!
Hahaha, þetta er ekki einu sinni djók.. 

Menn vilja meina að ég hafi verið hjúúúds með prinsinn en váááá, pínötts við hliðina á henni..  Hún er ótrúlega sterk hún Sylvía mín, vonandi er þetta bara við það að gerast..  Las hjá henni vefdagbókina í morgun og síðasta færsla hjá henni var kl 5 í morgun!!  Ok somethings off við það ekki satt??  Hún sagðist ekki vera vitund þreytt en væri að drepast úr ógleði og verkjum.. 

Hef verið með krossaða putta, tær, hendur og fætur og allt sem krossast getur síðan þá..  Vááá hvað maður setur sig rosalega í spor annarra, stundum á ég hreinlega bágt..;) 

Annars er englarósin mín í sveitinni hjá ömmu og afa, sakna hennar sárt en ég veit, hún hefur bara gott af þessu..  Þarna líður henni eins og blómi í eggi..  Hún fékk að fara í skólann með ömmu og matreiða ofan í krakkana, það fannst henni æði..  Hún er samt búin að hringja og segjast vilja koma heim því hana langi svo rosa Í mig.. 

Við erum klárlega sálufélagar ég og hún yndisfríða dóttir mín, eða eins og Gunni minn segir túúú of a kænd..:) 

Ætla að láta þetta duga, firekrakkerinn kveður..;)

Linda María Guðmundsdóttir

Þá sest ég að skriftum..

Alltaf finnst manni jafn furðulegt þegar maður er gerður að skotspóni kjaftasagna..  Fullorðið fólk, komið með börn, að það skuli ekki hafa
þroskast og hætti svona..   Eitthvað hefur maður gert, það er alveg á
hreinu, en gott væri að fá að vita hvað svona einstaklingum gengur til..

Þegar þetta er farið að bitna á börnum manns þá segi ég STOPP!! 
Þetta er ekki að blífa í mínu lífi, hvað þá hjá saklausum börnunum!!
Mig dreymdi í nótt að ég hefði loksins tekist á við nokkra vel valda
drauga úr minni fortíð og ég sagði þeim svo þvílíkt til syndanna, ég vaknaði
bara endurnærð..;)  Hahaha, ef lífið væri bara svona einfalt.. 
Mér finnstég alltaf þurfa að byrja á að útskýra fyrir fólki
að ég sé alls ekki svona slæm,
þetta fólk sem talar svona skelfilega illa um mig það sé einfaldlega svona
sárt útí mig að það geti ekki annað en glefsað frá sér.. 

Allavega þá er égsátt við mig eins og ég er, ég geri mistök
eins og ALLIR aðrir..  Væri gott ef fólk benti manni kannski
vinsamlega á mistökin í staðinn fyrir að blasta
mér útúm allan bæ og þá halda þeim engin bönd.. 
Vááá, gott að koma þessu frá.. 
Ætla að láta þetta duga að sinni, ungfrú vinsæl kveður..;)

Takk fyrir mig..;)Linda María Guðmundsdóttir

Þá er alveg hreint mögnuðu afmæli lokið og er ég enn stönnd yfir gjafaflóðinu..  Váááá, þvílíkt og annað eins..  Takk kærlega fyrir mig kæru vinir, ég er djúpt snortin..  Allt í einu á maður 5 vínflöskur á sama tíma og ég get VARLA átt eina óopna..  Úúúúfff, nú eru sko Jólin, eða svoleiðis.. Þvílíkt af glingri, inneignum og váá og váá og váá..  Verð að hætta, vildi bara ná að hripa stórt takk og endalaust knúúús til ykkar allra..  Púkarnir öskra á athygli og því verður múttan að svara...  Yfir og út..;)

Linda María Guðmundsdóttir

Held að það sé kominn tími á nýja færslu er þaggi?? 

Ég sit hér með draumaprinsinn minn í fanginu og hugsa til þess hversu ótrúlega heppin ég er..  Þessi míní týpa af manninum mínum sem tekur sér pásu frá því að krota útum allar trissur og gefur mér fallegasta bros í heimi gefur mér meira en nokkur orð fá líst.. 

Prinsessan okkar sem er orðin SVO stór er líka algjört óskabarn..  Hún er bara svo ALLT of þroskuð miðað við árafjölda og veit þar af leiðandi hluti sem hún ætti ekki einu sinni að hafa hugmynd um.. Hún hefur blik í auga sem minnir mig á allt það sem ég óskaði að eiga í sjálfri mér þegar ég var yngri..  Svona eru gjafirnar sem maður fær, fullkomnar frá A-Ö..   

Á milli þess sem ég svíf á milli þakklætis og hamingju er ég einnig heltekin enn af hvarfi fólksins sem hrifsað var frá ástvinum sínum allt of snöggt..  Hjá þeim var skorið á líflínuna og fólkið sem eftir situr er enn með ótal spurningar sem sjálfsagt aldrei verður svarað..  Ég finn óendanlega mikið til með ykkur sem eigið svo skelfilega erfiða tíma framundan.. 

Ég hef verið að reyna að undirbúa afmælishátíðina mína sem rennur loksins upp núna á laugardaginn..  Það verður svo mikið um að vera að það þarf virkilega að plana svo maður nái að komast og upplifa sem mest..  Leiðinlegast finnst mér að ég missi af honum Magna mínum sem treður upp með sínum gömlu félögum og henni Dilönu á Broadway..  Beggers can't be choosers, you can't have the cake and eat it, eða eitthvað í þeim dúrnum.. 

Langar allavega að reyna að komast á þetta geðsjúka ball, ætli við Óli Geir og Thelma mín reynum ekki að komast í e-h rútudíl...  Ætli allir myndu ekki mæta ef við redduðum rútu og liðið úr báðum afmælum borgaði 500 kall á kjaft..  Þar er að segja ef teitið á Broadway er ekki orðið löngu troðið og uppselt..;) 

Ætla að kveðja ykkur að sinni gott fólk og góðar stundir..;)

Linda María Guðmundsdóttir

Elsku litla hjartað okkar allra er farið til englanna..  Elsku litla Bryndís Eva sem ég "átti" svo mikið í hefur kvatt okkur öll og hefur hafið nýtt líf á betri stað.. 

Mikið sem maður hefur grátið og syrgt þessa litlu stúlku og hennar yndislegu fjölskyldu, þau eru svo ótrúlega sterk hennar foreldrar.. 

Elsku Bebba og Hjölli, takk fyrir að leyfa mér að kynnast ykkur gegnum þennan litla kassa sem stendur hér á eldhúsborðinu hjá mér og öskrar á mig í hver sinn sem á honum er kveikt..  Öskrið og lætin og seinlegheitin í þessum litla, ljóta kassa mínum stoppa mig seint..  Eldur og brennisteinn hljóma sem sunnudagskaffi þegar þið fallega fjölskyldan eruð annars vegar.. 

Þessi litla fjölskylda úr Heiðarbólinu hefur kennt mér svo ótrúlega margt, líf mitt og okkar allra sem þau þekktu eða bara könnuðust við hefur breyst ótrúlega mikið..  Ég hef lært að meta hverja "einustu" stund og minni mig sjálfa á það statt og stöðugt að lífið er stutt, viðkvæmt og áföllin eða lífið sjálft gerir ekki boð á undan sér..!! 

Þið lifið ávallt í hjarta mér og sálu og allt sem í mínu valdi stendur er ykkur til boða elsku Bebba og Hjölli!!  Ég hugsa svo mikið til ykkar því þið eruð svo óendanlega miklar hetjur, í mér eigið þið ávallt sterka öxl og opinn faðm.. 

Guð geymi ykkur nú sem áður, varðveiti og veiti ykkur styrk og stoð.. 

Ætla að láta þetta duga að sinni kæru vinir.. 
Knúsið hvort annað og kyssið, við vitum aldrei hvenær kallið kemur.. 
Ykkar Linda María..Brosandi

Linda María Guðmundsdóttir

Stundum kemur yfir mann einhverskonar heftingur hvað bloggið varðar..  Ég les annarra manna og kvenna blogg og hugsa "já, einmitt það sem ég ætlaði að tala um" en svo þegar maður hefur náð að hlunka sér niður fyrir framan skjáinn þá er maður hreinlega blankó..  Ætla nú samt að sýna nokkra takta að þessu sinni..

Það hefur haft svo hrikalega sterk áhrif á mig þessi bílslys..  Þetta líf virðist óskiljanlegt á stundum, það borgar sig aldrei að skilja í reiði..  Það er alveg á hreinu..!!  Fór til Grétu vinkonu minnar á laugardaginn en hún missti manninn sinn í þessu skelfilega slysi á milli Sangerðis og Garðs..  Vá hvað hún ótrúlega sterk og mikil hetja, kemst ekki yfir það hversu vel hún höndlar þetta..  Mig langar bara að segja að ég er virkilega stolt að hafa haft tækifæri til að koma til hennar og faðma börnin hennar og fjölskyldu..  Elsku Gréta, takk frá botni hjarta míns..  Þúsund kossar og milljón knús frá okkur...

Ballið fræga, aðeins að koma með smá teik á því..
Þakið ætlaði hreinlega af Stapanum þegar Sálin kom, sá og sigraði..  Þetta band er algjörlega tímalaust og allir ungir sem aldnir ættu að geta hrist sína skanka í takt við gamla krúið..  Gleymi því seint þegar ég fékk nikkneimið Lindi frá honum Begga mínum, hann sagðist ekki eiga neinar stelpuvinkonur en var þó í vanda því við vorum svo góðir vinir og því ákvað hann að redda sér fyrir horn með þessu..  Alltaf hugsa ég til þessa tíma þegar ég heyri "Þegar leikur allt í Lindi"...
Þó fyndið sé til þess að hugsa þá var það ekki hljómsveitin sem hefur rifið í gróurnar á leiti heldur það að þetta hafi verið framhjáhaldsball ársins..??  Eikkvað fórum þessir hlutir fyrir lítið hjá minni, held stundum að ég og mínar vinkonur höfum verið útúr heiminum...  Svo fór ég að hugsa, jáááááá, ætli fólk hafi haldið þetta eða hitt um MIG því KANNSKI ég var að knúsa en HEI, dónt care what júú think..  Binn there dönn that a koppul of tæms, er hætt að svekkja mig yfir því af hverju ég er alltaf svona mikið issjú..  Ég  sé um að skemmta mér, sjáið þið hin um að skemmta ykkur sjálf, ekki lifa á annarra manna lukku eða ólukku..  Tími til kominn að þroskast og snúa sér að öðru.!!  Eruð þið ekki sammála..?

Að síðustu ætla ég að ympra aðeins á 25 ára, 2 árum of seint afmælinu mínu..

Veeeeiii, get ekki beðið..!!  Hef fest greipar á H-punktinum þann 30 september gott fólk, barnapíuleysi og er að vinna eru ekki leyfilegar afsakanir!! Fæ tvo stóra kúta af bjór með í kaupbæti og þakka ég kærlega fyrir alla þessa góðu hluti frá ykkur elsku Erla, Sunna, Valli og Óli..;)   Einhver komment á því hvað ég ætti að hafa með væru vel þegin...  Við stelpurnar erum líka búnar að vera að pæla í þema og eru komment um það einnig mjög vel þegin..;)  Ætla að hætta í bili því ég er skíthrædd um að ég nái ekki að vista þetta, er búin að vera í dag og hálfan með þetta sjitt..;)  Takk í dag kæru vinir og hafið það gott..;) 

Linda María Guðmundsdóttir

Jæja gott fólk, er ekki tími á færslu..Glottandi 

Hef ekki getað setist niður við tölvuskjáinn vegna svo ótrúlegra anna að stundum næ ég hreinlega ekki uppí það sjálf...  Hef verið að taka skipti og oftar en ekki komist fyrst á koddann um 4 eða 5 leytið og vaknað með bjútíprinsinum sem ALLTAF er risinn um 6..!!!   He, he Risinn er risinn, hentar vel að þessu sinni..Hlæjandi 
Náði nú samt að skvísa mér á Sálarball á laugardaginn sem var hreinlega bomban..  Náði einnig að henda niður nokkrum Breezerum með Svövu og Eiríku og höfðum við nú barasta gott af...  Við krúið uppí vinnu höfum ekki séð til sólar svo dögum ef ekki vikum skiptir.. 

Mikið var um manninn og hitinn náði held ég bara sólarlandastíl þarna í Stapanum,  ekki sást þurr blettur á dansmaníunum og hef ég líklega farið langt með að  bæta upp ansi dræma  mætingu í Lífsstíl.. 

Lífið getur orðið pínu flókið með tvo stubba og mann sem vinnur á hinni vaktinni og er aukavinnuSKYLDUGUR gott fólk..  Þið vitið vonandi hvað það þýðir, engir lausir tímar fyrir skötuhjúin..Gráta 

Náðum nú samt að versla skóladót fyrir Alexöndru Mist og gera góðan MacDonaldsdag úr þeirri Reykjavíkurferð um síðustu helgi.. 

Nýta það sem manni gefst, er það ekki alltaf málið og sætta sig við það sem maður getur ekki breytt..!!  Gógó gellan kveður heil og sæl..Koss

Hún á afmæli í dag...!!Linda María Guðmundsdóttir

Jæja gott fólk, þá er míns orðin árinu eldri...  Vúúúúúúbbbbíiííí!! Anjo  veinti siete eða 27years of age..  Vonandi verður þetta ár enn skemmtilegra og hefur fullt af góðum hlutum í för með sér..Glottandi  Ég er allavega svona þokkalega vongóð og hef ýmislegt planað, það á allt eftir að koma í ljós og vel á óvart í leiðinni..Glottandi  Tek aukavakt á morgun fyrir Söndru greyið sem verður í flugvél á leiðinni frá Tenerife ef mér skjátlast ekki..  Þannig að annað kvöld hefur skyndilega opnast..  Ef ekki verður farið út að borða með mínum heitt elskaða þá er ég opin fyrir öllu...  Endilega hafið samband mine damen und heerrrr því ég svo spennt fyrir komandi parteeeii...Svalur  Hlakka líka úúúúber mikið til að koma með fansý pansý köku uppí vinnu á fimmtudag, veit að allir vinnufélagarnir eru að telja niður því ég geri svo góðar kökur úr tilbúnum botnum..Tala af sér   Hahaha, endalaus húmor í því en kökurnar standa engu að síður fyrir sínu..!!  Jæja gott fólk, ætla að fara að hita upp fyrir Magna, er alveg að fara af límingunum úr spenningi..  Takk í dag og strjúkið kviðinn kæru vinir, það stendur alltaf fyrir sínu..Koss

Home sweet home..;)Linda María Guðmundsdóttir

Jæja, þá eru allir komnir heim og lifa í sælu..Svalur  Rosa erfitt að fara svona án stubbanna sinna, þetta verður EKKI endurtekið!!!  Margar ástæður sem ekki verða viðraðar hér... 
Maður er fljótur að komast að því hverjir skipta manni höfuðmáli í lífinu þegar hin hundleiðinlega neyð bankar uppá...  Hlutirnir geta verið líkir kviksyndi þegar maður lendir í vandræðum, enginn nákominn til að kippa hlutunum í liðinn og oftar en ekki þá eru það litlu englarnir sem verða verst úti... Fýldur

Erfitt getur það orðið þegar fullorðna fólkið hefur ekki metnað eða áhuga í að sinna fjölskyldunni sinni...  En áður en ég tapa mér í óþarfa breiskju og svekkelsi þá ætla ég að minna ALLA á að lífið er stutt og maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér... 

Þrjóska og þráelsi gerir engum neina greiða og á meðan tíminn og minningarnar sem litlu virðast skipta á meðan þeim stendur húrrast fram hjá okkur á nánast ljóshraða þá er lítið sem við getum gert til að fá að endurtaka það sem liðið er...  Best er að gleyma því gamla sem sýkir og seitlar og einbeita sér að því að lifa lífinu einn dag í einu, það er ekkert annað sem skiptir máli...  Eða hvað?? 

Ekki eru allir sammála svona skoðunum en þar sem ég er og mun alltaf vera ljónið hún Linda María þá held ég ótrauð áfram í að reyna að vera ávallt sanngjörn og er ALLTAF tilbúin til að gefa fólki annað tækifæri, mistökin eru nú einu sinni mannleg ekki satt..??  Takk fyrir "áheyrnina" kæru vinir og knúsið ástvini ykkar frá mér..Koss
Síða 6 af 7